Laugarland á Flúðum

Ef þú hefur farið í sundlaugina á Flúðum, setið í heita pottinum og horft upp brekkuna upp af sundlaugabakkanum þá hefur þú hugsanlega séð góðurhús Laugarlands rétt fyrir ofan.

Í gróðurhúsunum næst sundlauginni eru ræktaðar rósir af miklu kappi. Litlu rósirnar fást í lausu í “óætu” deildinni okkur, þá er bara hægt velja sér eina og eina rós sem margir kunna að meta. Rósirnar gera líka frúnna fallegri.

Ýmislegt grænt og gott er þó ræktað líka á Laugarlandi og má sérstaklega nefna hið vinsæla fjallaspínat sem er eitt af því sem heldur lífi í Frú Laugu yfir vetrartímann. Einnig fjallasteinselja, mizuna og klettasalat.

Emil Gunnlaugsson stofnaði Laugarland 1955 og rekur enn í dag ásamt sonum sínum Rafni og Magnúsi.

Rafn tók á móti okkur daginn sem við kíktum í heimsókn, sýndi okkur gróðurhúsin og listaherbergið. Hann sýndi okkur fjallaspínatið sem þá var aðeins lítið tilraunabeð og sömdum við um prufusendingar fyrir Frú Laugu um leið og fyrsta uppskera kæmi í hús. Það tókst svona glimrandi vel og sér ekki fyrir endann á.

Ritaði Arnar