Vinsælasti grænmetissalinn á Flúðum er líklegast sjálfsalinn á Melum sem stendur við vegkantinn á jaðri bæjarins. Varla er til sá ferðalangur og sumarbústaðarfari sem hefur ekki heilsað upp á sjálfsalann og nælt sér í nýtt grænmeti í skiptum fyrir klink.
Við renndum í hlað á Melum síðasta vor og fengum lipra og ljúfmannlega leiðsögn hjá Guðjóni grænmetisbónda sem hefur verið innan um grænmeti frá barnæsku eins og eiginkona hans Sigríður Helga. Í dag eru Melar eitt kraftmest býlið í grænmetisframleiðslu á landinu og framleiðir mest allra af tómötum, þ.á.m. konfekttómatana góðu sem eru svo vinsælir í Frú Laugu. Hér fáum við líka sérstaklega gott spergilkál, smágert og bragðmikið, agúrkur og fleira.
Þar er óhætt að segja að framleiðslan hér sé vistvæn. Tómatarnir eru ræktaðir í vikri úr Heklu gömlu og árvökular býflugur sjá um fróvgunarstörf. Engin eiturefni eru notuð.
