Eftir því sem við best vitum er aðeins einn sveppabóndi á landinu, Georg Ottóson á Flúðasveppum. Hann er því ókrýndur konungur sveppsins á Íslandi og varla til sá Íslendingur sem hefur ekki smakkað flúðasvepp.
Sem betur fer fyrir okkur sveppaæturnar er ræktunin vistvæn frá upphafi til enda. Hún hefst þegar safnað er saman afgangshálmi frá nærliggjandi bændum og bætt við skít og vatni til að búa til moltu. Þetta myndar jarðveginn sem sveppagrónum er stráð yfir auk þess að vera uppstaðan í flúðamoldinni vinsælu sem Georg framleiðir og margir nota til vistvænnar ræktunar.
Þetta er myndarlegt býli sem spilar mikilvægt hlutverk í sjálfbærni þjóðarinnar.

