Bændur og búalið til sjávar og sveita færa frú Laugu matvörur eftir föngum allan ársins hring — frá sultukrukkum til lambaskrokka. Frúin færir fólkið sem framleiðir nær fólkinu sem neytir. Upprunalegar og ekta, lystugar, lífrænar og hollar — frú Lauga elskar og borðar þær allar.
Árnessýsla
Langamýri á Skeiðum
Rabarbari, sultur, fíflasýróp, ristaðar möndlur
Dóra og Kjartan eru ókrýndir rabarbarabarónar Íslands og hafa hannað fallega línu í samstarfi við Listaháskólann.
Doktor með egg úr Smáratúni.
Engi í Biskupstungu
Lífrænt grænmeti, krydd
Fátt kætir Frú Laugu meira en vikuleg sending af alls konar lífrænu grænmeti frá Ingólfi og Sigrúnu.
Friðheimar í Biskupstungu
Tómatar
Konfekttómatarnir hjá Knúti og Helenu eru sælgæti og fastur liður í hverri viku.
Silfurtún á Flúðum
Jarðarber, rauðrófur
Þau endast ekki lengi á meðan þau gefast en íslensku jarðarberin frá Eiríki og Olgu hljóta að vera með þeim bestu í heimi.
Flúðasveppir
Sveppir
Frá Georgi og fjölskyldu fáum við stóra sveppi, hvíta og kastaníu, og seljum ávallt í lausu.
Laugarland á Flúðum
Fjallasteinselja, laufsellerí
Dökka og bragðmikla fjallaspínatið frá Rafni og fjölskyldu hefur slegið í gegn.
Melar á Flúðum
Tómatar ofl.
Alls konar hollt og gott grænmeti frá Guðjóni og Sigríði en ekki síst tómatarnir.
Flúðajörfi á Flúðum
Spergilkál ofl.
Allt konar hollt og gott grænmeti frá Friðriki og fjölskyldu, inni- og útiræktað.
Sólheimar í Grímsnesi
Lífrænt grænmeti, chutney, salsa, brauð bakkelsi
Það er sérstaklega ánægjulegt að eiga svona góð samskipti við sælusamfélag Sólheima en ekki spilla fyrir gæðin á grænmetinu hans Inga og hjá töframanninum Frosta bakara.
Hæðarendi í Grímsnesi
Lífrænt grænmeti
Einn af hápunktum grænmetisvertíðarinnar er án efa uppskera sætu og safaríku gulrótanna hennar Svanhvítar.
Laxárdalur
Korngrís, svínakjöt
Petrína og Björgvin rækta sitt eigið bygg og fóðra einhverja heppnustu grísi á íslandi. Beikonið hverfur jafnóðum og það birtist.
Hveratún í Biskupstungu
Salat
Brakandi gott salat frá Magnúsi og Sigurlaugu árið um kring en ekki síst að vetri þegar flest annað grænmeti gengur til þurrðar.
Böðmóðsstaðir í Bláskógarbyggð
Bjúgu
Ekta sveitabjúgu og fleira kjötmeti frá Jóni sem er með sína eigin kjötvinnslu á býlinu.
Forsæti í Villingaholtshreppi
Kartöflur
Flestar kartöflurnar okkar koma frá Kristjáni og Önnu sem sá og uppskera að mestu leiti öllu sjálf.
Hverabakarí
Hverabrauð, laufabrauð, ástarpungar o.fl.
Alls konar góðgæti frá Sigurjóni bakara og fjölskyldu kemur að lágmarki einu sinni í viku í bæinn.
Rangárvallasýsla
Lágafell í Austur-Landeyjum
Alikálfur, folald, broddur
Litlu, fágætu alikálfarnir frá Sæunni og Halldóri hljóta að vera eitthvert mýksta og meyrasta kjöt sem völ er á.
Smáratún í Fljótshlíð
Hrossabjúgu, egg
Margbreytileg framleiðsla frá Ívari og fjölskyldu sem einnig reka kraftmikla ferðaþjónustu.
Kjósarsýsla
Neðri-Háls í Kjós (Biobú)
Mjólkurvörur
Holl og góð framleiðsla frá frumkvöðlum í lífrænni ræktun er orðin fastur liður í Frú Laugu.
Sogn í Kjós
Hamborgarar, beef jerky, carpaccio, reykt nautakjöt og ýmsar fleiri nautakjötsafurðir, sultur, kæfa
Eins og klukka á hverjum þriðjudegi koma Sveina og Snorri með ferskt nautakjöt, carpaccio, hamborgara, beef jerky og fleiri nauta-afurðir sem þau í eigin vinnslu.
Dalsgarður
Túlipanar, rósir
Blómin í lausu frá Gísla og fjölskyldu hafa vakið lukku og svo eru þau bara falleg að sjá.
Brúnegg
Egg, hæna, hani
Brúneggin bragðgóðu frá bræðrunum Birni og Kristni eru seld í lausu og hægt að koma með og fylla á sinn eigin bakka.
Gullbringusýsla
Íslensk Hollusta
Söl, belgþari, fjallagrös, saft, ber, te, o.fl.
Hreinar og vandaðar afurðir úr náttúru Íslands frá Eyjólfi og Bergþóru.
Ópal sjávarfang
Beykireykt þorsklifur
Framleidd á Sandgerði, full af hollum fitusýrum og best á góðu kexi.
Austur-Skaftafellssýsla
Árbær á Mýrum
Nautakjöt, ís
Sæmundur og Anne framleiða sinn eigin ís með ýmsum bragðtegundum en sá með lakkrísnum er alltaf vinsælastur.
Hali í Suðursveit
Bleikja
Sú bleika hefur verið með okkar vinsælli vörum og Þorbjörg og Fjölnir anna varla eftirspurn á henni.
Hlíðarberg við Hornafjörð
Andakjöt, andafita, paté, kæfa
Reynir andabóndi og hans fólk sjá um allar hliðar ræktunarinnar allt til slátrunar og það skilar sér í bragðmikilli og vandaðri vöru.
Unnsteinn og Ómar
Makrílpaté, heitreyktur makríll
Trillukarlarnir tveir veiða makríl á handfæri og vinna í afurðir sínar hjá Matís á Höfn í Hornafirði.
Sigurður Óli
Humar
Hornfirskur humar, beint af bátnum frá Óla Sigurðar og fjölskyldu á bátnum Sigurði Óla.
Vestur-Skaftafellssýsla
Þórisholt í Mýrdal
Rófur
Ljúffengar gulrófur, geymdar við góðar aðstæður svo þær duga vel frameftir vetri.
Suður-Múlasýsla
Vallanes (Móðir jörð)
Lífrænt grænmeti, bygg, grænmetisbuff ofl.
Vörur Móður jarðar eru þegar oðnar landsþekktar en Eymundur og Eygló virðast hvergi hætt að þróa það og rækta áfram.
Hrefnuber og jurtir
Sultur
Hrafnhildur sultudrottning gerir hinar bestu sultur sem mann langar helst að borða beint úr krukkunni.
Holt og Heiðar á Hallormsstað
Birkisafi, birkisýróp, sultur, sveppir
Hreini birkisafinn frá Guðnýju og Bergrúnu er sérstaklega spennandi afurð.
Suður-Þingeyjarsýsla
Hella í Mývatnssveit
Reyktur silungur, sperðlar, kæfa, kindakjöt
Hér kunna menn að reykja svo Frú Lauga hefur varla þurft að leita annað en til Steinu og Birgis eftir reyktum silungi og ærbjúgun eru alvöru.
Sandur í Aðaldal
Te, krydd
Sigfús ræktar blóðberg, hvönn og alls konar aðrar, íslenskar jurtir og þurrkar í te og krydd.
Norður-Þingeyjarsýsla
Lón II í Kelduhverfi
Sápur
Fyrsta varan sem við fengum í Frú Laugu var ekki matvara heldur sápur en Gugga og Einar búa þær til íslenskt hráefni, hollustu og hreinlæti í fyrirrúmi.
Fjallalamb á Kópaskeri
Hangiköt, svið, slátur, kæfa ofl.
Sláturfélag með vandaðar og sívinsælar vörur, ekki síst tvíreykta sauðahangikjötið fyrir jólin.
Eyjafjarðarsýsla
Holtsel í Eyjafirði
Ís
Guðmundur er frumkvöðull í framleiðslu bændaíss og gerir hann í ótal birtingarmyndum.
Austur-Húnavatnssýsla
Auðkúla
Flatkökur
Tvisvar í viku færa Haddý og Valdimar okkur volgar og ljúffengar flatkökur ásamt kleinum og normalbrauði.
Vestur-Húnavatnssýsla
Brekkulækur í Miðfirði
Lífrænt lambakjöt, lerkisveppir
Friðrik og fjölskylda stíga skrefinu lengra og hafa fengið lífræna vottun á lambakjötið sitt sem Frú Lauga fær ferskt í sláturtíð en frosið frameftir vetri.
Vestur-Ísafjarðarsýsla
Fiskverkun EG Flateyri
Harðfiskur
Handfæraveiddur, hjallþurrkaður, pakkaður, sendur, seldur - Einar og Guðrún sjá um allar hliðarnar á ekta harðfiskframleiðslu sinni.
Dalasýsla
Erpsstaðir í Dölum
Skyr, rjómi, ís, ostur
Þorgrímur og Helga er skínandi dæmi um nýja kynslóð bænda sem rækta, þróa og framleiða eigin vörur úr eigin hráefni.
Snæfellssýsla
Ystu-garðar í Borgarnesi
Andaregg
Endurnar á Ystu-görðum verpa ekki eftir pöntun en Þóra og fjölskylda senda okkur andaregg þegar þau eru aflögufær.
Íslensk bláskel
Bláskel
Símon hefur byggt upp flotta rækt í Breiðafirði og vikulegur skammtur á hverjum miðvikudegi er fastur liður.
Mýrasýsla
Háafell í Borgarbyggð
Geitaís
Megi íslenska geitin lifa og dafna svo Jóhanna geti sent okkur ýmis konar fleiri geitaafurðir í framtíðinni.
Örnólfsdalur
Sultur, saft
Dídí býr til unaðslega saft og sultur úr rabarbara og berjum.
í stafrófsröð
Auðkúla
Árbær á Mýrum
Brekkulækur í Miðfirði
Brúnegg
Böðmóðsstaðir í Bláskógarbyggð
Dalsgarður
Engi í Biskupstungu
Erpsstaðir í Dölum
Fiskverkun EG Flateyri
Fjallalamb á Kópaskeri
Flúðajörfi á Flúðum
Flúðasveppir
Forsæti í Villingaholtshreppi
Friðheimar í Biskupstungu
Hali í Suðursveit
Háafell í Borgarbyggð
Hella í Mývatnssveit
Hlíðarberg við Hornafjörð
Holtsel í Eyjafirði
Hrefnuber og jurtir
Hverabakarí
Hveratún í Biskupstungu
Hæðarendi í Grímsnesi
Íslensk bláskel
Íslensk Hollusta
Langamýri á Skeiðum
Laugarland á Flúðum
Laxárdalur
Lágafell í Austur-Landeyjum
Lón II í Kelduhverfi
Melar á Flúðum
Miðey í Austur-Landeyjum
Neðri-Háls í Kjós
Ópal sjávarfang
Sandur í Aðaldal
Sigurður Óli
Silfurtún á Flúðum
Sogn í Kjós
Sólheimar í Grímsnesi
Smáratún í Fljótshlíð
Unnsteinn og Ómar
Vallanes (Móðir jörð)
Ystu-garðar í Borgarnesi
Þórisholt í Mýrdal
Örnólfsdalur
