2. tölublað ársins af fréttabréfi frúarinnar er komið í loftið
Bein útsending
Fréttir eftir föngum
Frú á fésbók
-
Nýlegar færslur
Frú Lauga bloggar um þetta
Það tístir í frúnni
Lífrænu vínin frá Valdibella fá fallega umfjöllun í Gestgjafanum. Rósavínið Dhyana og rauðvínið Jaki fá fjögur glös af fimm og nafnbótina Vín mánaðarins. Hvítvínið Ariddu fær þrjú og hálft glas. Í stuttu máli er það hreinleiki vínanna m.a. sem fangar vínsmakkara tímaritsins. Hrein, vegna þess að þau endurspegla af einlægni uppruna sinn, Sikiley, og þrúgurnar sem í þau fara svo [...]
Eftir því sem við best vitum er aðeins einn sveppabóndi á landinu, Georg Ottóson á Flúðasveppum. Hann er því ókrýndur konungur sveppsins á Íslandi og varla til sá Íslendingur sem hefur ekki smakkað flúðasvepp. Sem betur fer fyrir okkur sveppaæturnar er ræktunin vistvæn frá upphafi til enda. Hún hefst þegar safnað er saman afgangshálmi frá [...]
Ef þú hefur farið í sundlaugina á Flúðum, setið í heita pottinum og horft upp brekkuna upp af sundlaugabakkanum þá hefur þú hugsanlega séð góðurhús Laugarlands rétt fyrir ofan. Í gróðurhúsunum næst sundlauginni eru ræktaðar rósir af miklu kappi. Litlu rósirnar fást í lausu í “óætu” deildinni okkur, þá er bara hægt velja sér eina [...]
Vinsælasti grænmetissalinn á Flúðum er líklegast sjálfsalinn á Melum sem stendur við vegkantinn á jaðri bæjarins. Varla er til sá ferðalangur og sumarbústaðarfari sem hefur ekki heilsað upp á sjálfsalann og nælt sér í nýtt grænmeti í skiptum fyrir klink. Við renndum í hlað á Melum síðasta vor og fengum lipra og ljúfmannlega leiðsögn hjá [...]
Opið 12-19 alla daga til jóla (lokað aðfangadag). Ef frúin er í stuði og gestir halda áfram að koma verður opið eitthvað fram á kveld, jafnvel. Eftir jólin er opið þriðjudag til föstudags 12-18 (lokað gamlársdag). Gleðilega hátíð!
Epli frá Englandi, 590 kr/kg
Lífrænar blóðappelsínur frá Sikiley, 590 kr/kg
Holdanautasteikur frá Sogni í Kjós, 3980 kr/kg
Romaine salat frá Ösp í Biskupstungu, 240 kr/stk
Grænkál frá Engi, 390 kr/stk
Hreinn eplasafi frá Chegworth Valley á Englandi, 640 kr/l
Sveitaskyr frá Erpsstöðum, 490 kr/dollan
☞ Aðföng
Lífrænu vínin frá Valdibella fá fallega umfjöllun í Gestgjaf-anum.
Rósavínið Dhyana og rauðvínið Jaki fá fjögur glös af fimm og nafnbótina Vín mánaðarins. Hvítvínið Ariddu fær þrjú og hálft glas.
Í stuttu máli er það hreinleiki vínanna m.a. sem fangar vínsmakkara tímaritsins.
Hrein, vegna þess að þau eru framleidd af virðingu fyrir náttúrunni og laus við ónáttúrlega ofurmeðhöndlun úti á vínekru sem inni í víngerð.
☞ Meira um vínin með matnum hjá Víni & mat
Frú Lauga heitir ekki bara eftir Laugarneshverfi.
Lauga er sameiginlegt gælunafn þriggja amma okkar eigendanna, Arnars og Rakelar — Sigurlaug, Áslaug og Guðlaug, og sú fjórða hét Elín.