Frú Lauga er alls staðar: Flickr · Twitter · Facebook

Viltu vita hvaðan maturinn þinn kemur?

Bændamarkaður frú Laugu er að Laugalæk 6, við hliðina á 10/11 og Ísbúðinni.

Hjá frúnni eru á boðstólum vörur beint frá bónda fyrir fólk sem vill vita hvaðan maturinn þess kemur.

Vöruframboðið er í mótun og við erum á fullu við að tala við bændur, sjómenn og fleiri.

En við vitum nú þegar að til sölu verður gómsætur matur af ýmsum toga; ís, skyr, harðfiskur, hákarl, sólþurrkaður þorskur, bláskel, kjöt og grænmeti og sitthvað fleira. Skoðaðu vöruúrvalið hér

Hver er frú Lauga?

Frú Lauga heitir í höfuðið á ömmum okkar stofnendanna, þeim Sigurlaugu, Guðlaugu og Áslaugu. (Fjórða amman hét Elín. Við skírum örugglega eitthvað í höfuðið á henni seinna.)

Nafnið hefur líka skírskotun í hverfið okkar, Laugarnesið, Laugardalinn og Laugalæk, götuna þar sem frúin stendur.

Lestu meira um Frú Laugu

Bændamarkaður frú Laugu on Facebook