Flokkað: Nýjar vörur daglega
Dönsum við í kringum
Jólatré. Stafafururnar frá Vallanesi, Móður jörð, eru komnar. Of fallegar til að setja ekki upp strax.
Lífræn, alvöru epli frá bændum í England
Á meðan Frú Lauga bíður eftir að íslensk epli komi með krafti á íslenskan markað leitum við að góðum, lífrænum eplum frá nágrönnum okkar í henni Evrópu. Við fengum lífræn, ítölsk alpaepli frá Catarinu Bonetti síðasta vetur og höfðum reiknað með að fá þau aftur í haust en Catarina ákvað að leyfa þeim að lúra [...]
Enn af jólum
Jólin koma. Frú Lauga er búin að pússa og fægja gólfið og ætlar að setja upp jólakransana á næstu dögum. Fyrstu jólalegu vörunar eru þegar komnar í hús. Jólastjörnur frá Hveragerði, jólasápa frá bændunum á Lóni, jólabrjóstsykur frá Svandísi kandísi, tvíreykta sauðahangikjötið vinsæla og hólahangilæri frá Fjallalambi, hangiframpartur og villigæs frá Hellu í Mývatnssveit og [...]
Frúin jólar sig upp með ítölsku góðgæti
Frúin er að komast í jólaskap og er í óða önn að panta vörur frá Ítalíu svo það verði enginn skortur fyrir jólin. Ekki kannski bókstaflegar jólavörur allt saman heldur meira áfyllingar eins og af Amedei súkkulaði, Afeltra pasta, hunangi frá Silviu, ólífum, risottó og öðrum góðkunningjum. Og ekki má gleyma sítrusávöxtunum frá Sikiley sem [...]
