Flokkað: Tilkynningaskyldan

Styttri fréttir um hluti eins og breyttan opnunartíma, nýjar vörur, etc.

Fyrsti dagur ársins í dag

Gleðilegt nýtt ár! Opið í dag til 18.00.

Ritaði Arnar

Opnunartími yfir hátíðarnar

Opið 12-19 alla daga til jóla (lokað aðfangadag). Ef frúin er í stuði og gestir halda áfram að koma verður opið eitthvað fram á kveld, jafnvel. Eftir jólin er opið þriðjudag til föstudags 12-18 (lokað gamlársdag). Gleðilega hátíð!

Ritaði Arnar

Vín mánaðarins í Gestgjafanum

Bændurnir í Valdibella eru ánægðir með að rauðvínið þeirra JAKI skuli hafi verið valið VÍN MÁNAÐARINS í jóla-Gestgjafanum sem var að koma út. “Einstakt jafnvægi og mikil gæði miðað við verð” – 4 1/2 glas.

Ritaði Arnar Tagged , , , |

Áríðandi appelsínufrétt

Þessa dagana er verið að undirbúa væna sendingu af ávöxtum frá vinum okkar á Sikiley. Sikileyskar appelsínur verða því komnar í Frú Laugu í þar næstu viku, eftir nákvæmlega 10 daga. Ekki blóðappelsínur en góðar, gular navellina appelsínur. Með í för verða sítrónur og grasker frá bændunum í Valdibella. Því miður nást ekki möndlur með [...]

Ritaði Arnar Tagged , , , |

Nýtt bréf Frú Laugu

Beint úr pressunni, volgt og ilmandi. Nýtt fréttabréf.    

Ritaði Arnar Tagged |

Bréf frú Laugu

Volgt úr prentsmiðjunni, nýtt fréttabréf frá Frú Laugu.

Ritaði Arnar Tagged , , , , , |