|
|
UPPSKRIFTIN
Alikálfur frá Lágafelli
Alikálfur er 100 daga gamall kálfur sem hefur nánast eingöngu drukkið mjólk á sinni stuttu ævi en einnig svolítið annað fóður eins og hey.
Sæunn og Halldór á Lágafelli hugsa meira um gæði en magn og slátra kannski er einum til tveimur á mánuði.
Alikálfurinn frá þeim er eitthvað allra besta kjöt sem við höfum eldað á heimilinu, svo mjúkt og bragðgott.
Vínið með alikálfinum má vera sæmilega kröftugt þótt kálfurinn sé mildur á bragðið. Við drukkum með Saint Joseph frá Saint Cosmé sem smellpassaði, svolítið eins og alikálfurinn, mjúkt, milt en lúmskt öflugt.
Við elduðum nýlega file og rib-eye úr alikálf frá Lágafelli. Allt svo einfalt að það er varla hægt að tala um uppskriftir. Lestu framhaldið á blogginu
|
|
|
VÍNIÐ MEÐ JÓLAMATNUM
Jólavínið Bisceglia Aglianico del Vulture
Aglianico del Vulture er fjölhæft matarvín og aðgengilegt á sinn suðræna hátt. Ávaxtaríkt og þétt á velli og gott með jólamatnum.
Það er úr lífrænum þrúgum, þykkt og kröftugt, og fullt af einkennandi svörtum berjum og suðrænum eiginleikum sem okkur finnst gott að hlýja okkur við yfir vetrarmánuðina.
Vínótekið 4 glös: "Mikið vín en samt leikandi létt. Maður segir bara vá!"
Gestgjafinn 4 glös: "Sérstaklega vandað vín sem dregur fram það besta hjá þrúgunni, margslungið og matarvænt."
Fæst í Vínbúðunum Skútuvogi, Heiðrúnu, Kringlunni, Hafnarfirði og á Akureyri.
P.S. Minnum á vínsmökkun frú Laugu alla föstudaga. Komdu!
|
|
|