Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Frúin er á Facebook

Laugupósturinn
miðvikudaginn
24. mars 2010

Frú Lauga, bændamarkaður Laugalæk

Sendur reglulega
til nákvæmlega 2129
tryggra áskrifenda

Lífrænt páskalamb hjá frúnni, og vínið með því

Ungur bóndi

Snemma beygist krókurinn.

NÝJAR OG GÓMSÆTAR VÖRUR

Lífrænt lamb um páskana

Brekkulækur er sauðfjárbú sem stendur við bakka Miðfjarðarár í Húnaþingi Vestra, 20 kílómetra frá Hvammstanga.

Frá árinu 2002 hafa bændurnir Friðrik og Henrike framleitt þar lífrænt ræktað lambakjöt sem þýðir meðal annars að lyfjagjöf er í lágmarki, tilbúinn áburður ekki borin á tún, grænfóður ekki notað og ærnar ganga frjálsar inn og út úr fjárhúsum að veturlagi.

Fyrsta sending af þessu góða lambakjöt er komin í hús; hryggur, kótilettur og grillsneiðar.

Það þarf náttúrulega ekki að taka fram að frúin mælir eindregið með þessu góða lambakjöti fyrir hátíðirnar framundan.

Kíktu á okkur á Facebook »

VÍNIÐ MEÐ PÁSKALAMBINU

Miðfjarðará hittir Rónará

Mörg rauðvín sýna sínar bestu hliðar með lambakjöti. Við leitum gjarnan í rauðvín sem feta einhvern þægilegan, klassískan meðalveg og hafa sjarmerandi karakter sem hvorki yfirgnæfir né fellur í skuggann af lambakjötinu.

Eitt rauðvín kemur sterkast upp í hugann að þessu sinni en það er hið glæsilega Cotes de Rhone frá hinum forna varðkastala á bökkum árinnar Rón, Chateau de Montfaucon.

Sjálfur Gestgjafinn valdi það Vín mánaðarins fyrir nokkru og mælir einmitt með því með sunnudagslambinu. Fæst í Vínbúðunum í Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi.

Meira um það á blogginu »

Cotes de Rhone

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Frú á Fésbók

Fésbókin

Frúin heimtaði að vera á Facebook. Við létum það eftir henni. Viltu vera memm?

Allt um Laugu

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um frúnna en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Lífræn opnun

Tíminn

Frá 12-18 miðvikudag til föstudags, og til 16 á laugardögum. Meira um afgreiðslutíma

Frú Lauga · Bændamarkaður Víns & matar · Laugalæk 6 · Sími 693 7165