Bændurnir í Valdibella eru ánægðir með að rauðvínið þeirra JAKI skuli hafi verið valið VÍN MÁNAÐARINS í jóla-Gestgjafanum sem var að koma út.
“Einstakt jafnvægi og mikil gæði miðað við verð” – 4 1/2 glas.
Verið velkomin. Frú Lauga er hverfisverzlun sem býður upp á ferskar matvörur frá íslenskum bændum um land allt. Gæði og rekjanleiki eru hennar ær og kýr. Hún flytur líka inn spennandi góðgæti frá bændum á meginlandinu og þá aðallega Ítalíu. Takk fyrir komuna.
Bændurnir í Valdibella eru ánægðir með að rauðvínið þeirra JAKI skuli hafi verið valið VÍN MÁNAÐARINS í jóla-Gestgjafanum sem var að koma út.
“Einstakt jafnvægi og mikil gæði miðað við verð” – 4 1/2 glas.
Þessa dagana er verið að undirbúa væna sendingu af ávöxtum frá vinum okkar á Sikiley. Sikileyskar appelsínur verða því komnar í Frú Laugu í þar næstu viku, eftir nákvæmlega 10 daga. Ekki blóðappelsínur en góðar, gular navellina appelsínur. Með í för verða sítrónur og grasker frá bændunum í Valdibella.
Því miður nást ekki möndlur með í þetta sinn þar sem þær voru ekki tilbúnar og frúin ekki nægilega þolinmóð til bíða eftir þeim… en þær koma síðar.
Af blóðappelsínum er það að frétta að áætlaður komutími er tveimur vikum síðar eða í vikunni á milli jóla og nýárs.
Það verða blóðappelsínuáramót.
Á meðan Frú Lauga bíður eftir að íslensk epli komi með krafti á íslenskan markað leitum við að góðum, lífrænum eplum frá nágrönnum okkar í henni Evrópu.
Við fengum lífræn, ítölsk alpaepli frá Catarinu Bonetti síðasta vetur og höfðum reiknað með að fá þau aftur í haust en Catarina ákvað að leyfa þeim að lúra aðeins lengur hjá sér svo þau koma ekki til okkar fyrr en í janúar.
Óvæntur eplaskorturinn leystist hins vegar loksins í dag þegar myndarleg sending af lífrænum eplum kom í búðina. Ekki frá Ítalíu þó í þetta sinn heldur frændum okkur í Englandi, nánar tiltekið bændahjúunum Lindu og David Deme.
Linda og David gerðust eplabændur fyrir tuttugu árum og hafa dreift eplum sínum, perum og öðrum ávöxtum fyrst og fremst í gegnum hina ótalmörgu bændamarkaði á Bretlandseyjum.
Bændamarkaður Frú laugu var næstur í röðinni.
Eplin þeirra er mörg hver fremur óþekkt afbrigði (í okkar eyrum) eins og þau þrjú sem okkar barst í dag, Cox, Braeburn og Egremont Russet.
Eplin eru fallega misstór og allavegana í útliti en svo einstaklega þétt og góð.
Alvöru epli.
Af hverju eru ekki öll epli svona?
Með í för eru hreinir safar úr eplum og öðrum ávöxtum bændanna.
Jólin koma.
Frú Lauga er búin að pússa og fægja gólfið og ætlar að setja upp jólakransana á næstu dögum.
Fyrstu jólalegu vörunar eru þegar komnar í hús.
Jólastjörnur frá Hveragerði, jólasápa frá bændunum á Lóni, jólabrjóstsykur frá Svandísi kandísi, tvíreykta sauðahangikjötið vinsæla og hólahangilæri frá Fjallalambi, hangiframpartur og villigæs frá Hellu í Mývatnssveit og laufabrauðið ljúfa frá Hverabakaríi.
Og margt, margt fleira er svo í vændum næstu daga og vikur.
Nýlenduvöruhornið fær svo væna innspýtingu frá Ítalíu næsta mánudag þegar ítalskar Tre Marie panettone jólakökur flæða yfir gólfið ásamt áfyllingu af Afeltra pasta, hunangi og Amedei súkkulaði.
Staðfestar fregnir úr ávaxtadeildinni herma að lífræn epli frá bændunum David og Lindu frá Kent-héraði í Bretlandi koma í Frú Laugu í þarnæstu viku ásamt epla- og perudjúsunum þeirra hjóna. Fyrsta sending frá þessum eðalhjónum og verður gaman að sjá hvernig fer. Viku síðar, ef guð lofar, mæta síðan fyrstu sítrusávextirnir frá Sikiley. Þeir verða frá Valdibella bændunum sem sendu okkur melónurnar góðu, möndlur, ólífuolíu og fleira. Þetta eru ljósar Navellina appelsínur og sítrónur ásamt graskerjum. Blóðappelsínur koma síðan mánuði síðar eða svo.
Við getum ekki, getum ekki beðið.
Frúin er að komast í jólaskap og er í óða önn að panta vörur frá Ítalíu svo það verði enginn skortur fyrir jólin.
Ekki kannski bókstaflegar jólavörur allt saman heldur meira áfyllingar eins og af Amedei súkkulaði, Afeltra pasta, hunangi frá Silviu, ólífum, risottó og öðrum góðkunningjum.
Og ekki má gleyma sítrusávöxtunum frá Sikiley sem eru rétt handan við hornið uppúr miðjum nóvember, sítrónur, appelsínur og greip sem nær svo hámarki þegar blóðappelsínurnar koma rétt fyrir jólin.
Frú Lauga gat reyndar ekki stillt sig um að panta eina nýja vöru fyrir jólin og hún er sannkölluð jólavara. Það er panettone, hin eina og sanna ítalska jólakaka. Hún kemur frá klassískum framleiðanda í Mílanó og verður í tveimur útgáfum auk pandoro köku og torrone möndlunammi.
Allt saman væntanlegt á næstu tveimur til þremur viku.
Frúin var á faraldsfæti í haust og heimsótti bændur og búalið á Ítalíu. Tók líka svolítið síðbúið sumarfrí í leiðinni, siestu, eftir að hafa verið á kafi í grænmeti uppfyrir olnboga allt sumar.
Fyrst var haldið til vínbændanna Alessandro og Antoniettu í Castello di Querceto þar sem þau bjóða upp á bændagistingu. Elskulegt fólk sem við höfum flutt inn vín frá í nokkur ár, Chianti Classico og beljuna meðal annars. Falleg sveitin, sundlaug, nálægð við Flórens og sanngjarnt verð gera þetta agriturismo að góðum kosti. Við gistum í aldagömlu húsi með þykkum viðarbitum í lofti í kastalakjarnanum miðjum.
Í Toskana heimsóttum við annan vínbónda sem við flytjum líka inn, ljúfmennið Giovanni Manetti hjá Fontodi. Hann var á kafi í víngerðinni en gaf sér tíma til að sýna okkur nýjar viðbætur á húsakynnum og vínsmakk á 2008 árgangi. Lífræn framleiðsla og til fyrirmyndar í alla staði.
Ekki er hægt að koma til Toskana án viðkomu hjá Falorni, pylsumeistaranum ógurlega í bænum Greve. Hans aðal er villisvínapylsa en líka alls konar aðrar pylsur, skinkur, pecorino ostar og girnilega vínbúð. Allir mathákar verða að stoppa hér!
Hersingin hélt líka í bæinn okkar La Romola, þar sem við áttum heima í 18 mánuði í gamla daga. Lítið og vinalegt þorp sem stendur á landamærum Chianti Classico svæðisins.
Eftir dvölina í Toskana hélt frúin ásamt föruneyti til Veneto héraðsins, nánar tiltekið á lítið sveitahótel, Corte dei Soavi, í hlíðunum ofan við hvítvínsbæinn Soave. Þetta litla gistipláss heillaði okkur gjörsamlega upp úr skónum og ekki var þjónusta staðarhaldaranna Massimo og Marinu verri. Einhver arkitekt í Veróna tók þarna gömul hús og gerði upp af mikilli natni. Frábær kaup sem Frú Lauga hvetur alla ferðalanga á þetta svæði til að gefa gaum, 30 mínútur frá Veróna, 5 mínútur frá Soave þorpi, 50 mínútur frá Feneyjum, á kafi í vínvið og sveitasælu.
Við heimsóttum Ca Rugate, okkur vínbónda á svæðinu. Reyndar höfum við líka flutt inn vín frá Dal Forno Romano en heimsóttum hann ekki núna þar sem við létum duga að flytja þau dýru vín inn aðeins einu sinni (já, 2007). Ca Rugate er stjórnað af Tessieri fjölskyldunni en hinn ungi Michele Tessieri hefur endurreist víngerðina og komið vínunum, ekki síst þeim hvítu, rækilega á kortið. Þessi vín eru hrein, vönduð og bein svo það kom okkur ekki á óvart að sjá að víngerðin var það líka, skipulögð eins og skurðstofa. Það vantar samt engan karakter í þessi einlægu vín.
Eplin hennar Catarinu Bonetti fengust í Frú Laugu síðasta vetur og verður framhald á komandi vetri. Við máttum því til með að heimsækja hana og keyrðum í 90 mínútur norður eftir, nánar tiltekið til Alpabæjarins Spormiore í Trentino héraði. Catarina lísti vel aðstæðum og erfiðleikum þess að vera eini lífræni eplabóndinn inn um alla hina í epladalnum Val di Non. Þetta árið hafði uppskeran rýrnað um næstum 50% vegna pöddu sem skemmdi lauf trjánna og gat hún ekki drepið hana með sömu ráðum og nágrannarnir. Hún berst fyrir tilverunni, fordómum annarri og í okkur augum sannkölluð matar-hetja. Frú Lauga getur ekki beðið eftir eplunum hennar Catarinu og finnst það forréttindi að hafa þau.
Við héldum upp á afmæli Grétu með bæjarferð til hinnar mystísku borgar, Feneyja. Gondólaferð og allur pakkinn. Borðuðum á góðum veitingastað stutt frá Markúsartorgi, Do Forni. Þar var hægt að fá góðan Feneyjarmat eins og svart smokkfisk-risottó, grillaðan fisk osfrv. Góður veitingastaður sem óhætt er að mæla með, aðeins í dýrari kantinum.
Þar sem við áttum flug frá Bologna ákváðum við að heimsækja lambrusco og balsamik-edik framleiðandann okkar Lini. Hittum ákkúrat á fjölskyldu-”brindisi” (=skál) þar sem nokkrir ættliðir Lini fjölskyldunnar voru samankomnir í vikulegri samdrykkju. Slógumst í hópinn og skáluðum í freyðivíni með tilheyrandi parmeggiano osti, hvað annað í þessu hjarta freyðivína og parmeggiano osta. Áttum góða skoðunarferð um víngerðina en það kom eiginlega á óvart hversu stór þáttur balsamik-gerðin var af framleiðslunni. Balsamikið svarta fæst í Frú Laugu og kannski bætum við annarri sort frá þeim á næsta ári.
Alberto Lini bauð okkur síðan upp á lókal hádegismat á veitingastað í Correggio og fór síðan með okkur í heimsókn til vinar síns, parmeggiano-framleiðanda í næsta nágrenni. Fengum að skoða þar framleiðsluna og þefa að okkur ilminum af 18.000 parmesan ostum.
Hér má skoða nokkrar myndir úr ferðinni og hreyfimyndir.
TAKK Ítalía.
Vinir okkar, hinir lífrænu eyjaskeggjar í Camporeale á Sikiley gáfu okkur sýnishorn af graskeri og laumuðu með í síðustu ávaxtasendingu.
Við skelltum í súpu.
Uppskriftina má finna hér en við slepptum eplum, salvíu og brauði og notuðum garam masala og turmeric krydd í stað karrís.
Lostæti.
Það er ekki verra að þeyta smjá rjóma með súpunni og bera fram með ferskri myntu.
Lífrænar blóðappelsínur frá Sikiley, 490 kr/kg
Holdanautasteikur frá Sogni í Kjós, 3980 kr/kg
Romaine salat frá Ösp í Biskupstungu, 240 kr/stk
Grænkál frá Engi, 390 kr/stk
Hreinn eplasafi frá Chegworth Valley á Englandi, 640 kr/l
Sveitaskyr frá Erpsstöðum, 490 kr/dollan
Lífrænu vínin frá Valdibella fá fallega umfjöllun í Gestgjaf-anum.
Rósavínið Dhyana og rauðvínið Jaki fá fjögur glös af fimm og nafnbótina Vín mánaðarins. Hvítvínið Ariddu fær þrjú og hálft glas.
Í stuttu máli er það hreinleiki vínanna m.a. sem fangar vínsmakkara tímaritsins.
Hrein, vegna þess að þau eru framleidd af virðingu fyrir náttúrunni og laus við ónáttúrlega ofurmeðhöndlun úti á vínekru sem inni í víngerð.