Frú Lauga er alls staðar: Flickr · Twitter · Facebook

Pantaðu þér í matinn hjá frú Laugu

HVER ER FRÚ LAUGA?

Frú Lauga heitir í höfuðið á ömmum okkar stofnendanna, þeim Sigurlaugu, Guðlaugu og Áslaugu. (Fjórða amman hét Elín. Við skírum örugglega eitthvað í höfuðið á henni seinna.)

Nafnið hefur líka skírskotun í hverfið okkar, Laugarnesið, Laugardalinn og Laugalæk, götuna þar sem frúin stendur.

Bændamarkaður frú Laugu on Facebook
Fréttabréf Frú Laugu

Frúin sendir einstaklega fróðlegt og fagurt fréttabréf um það bil tvisvar í mánuði.

Áskrifendur fá fréttir af frúnni, sögur úr búðinni, viðtöl við bændurna sem framleiða vörurnar sem við seljum og svo uppskriftir að alls konar gómsætum mat og meðlæti.

Fréttabréfið er ókeypis og það er mjög einfalt að gerast áskrifandi. (Og það er ennþá auðveldara að segja upp áskriftinni ef þú vilt hætta við.)

Hefurðu hitt Beljuna?

Beljan er sérstök vinkona Frú Laugu.

Hún fæst reyndar ekki hjá frúnni, bara í Vínbúðunum, enda inniheldur hún þrjá lítra af spenvolgu rauð- eða hvítvíni beint frá vinum okkar í Toskana.

Athugið: Það er mjög mikilvægt að geyma Beljuna á fallegum stað.

Beljan »

Vínið með matnum

Við stofnuðum Vín og mat veturinn 2003, eftir að við fluttum heim frá Ítalíu.

Við flytjum bara inn vín og mat sem við okkur þykir sjálfum sérstaklega mikið varið í.

Vín og matur »

Vinir og vandamenn