Frú Lauga er alls staðar: Flickr · Twitter · Facebook

Allt sem þig langaði að vita um frú Laugu

Hver er frú Lauga?

Frú Lauga er bændamarkaður eða sveitavörumarkaður sem selur Reykvíkingum og nærsveitamönnum góðar vörur frá metnaðarfullum íslenskum bændum.

Hvar er frú Lauga?

Frú Lauga er að Laugalæk 6 í Reykjavík (við hliðina á ísbúðinni og 10-11).


Sjá kort í fullri stærð

Hvenær er opið hjá frú Laugu?

Afgreiðslutímar frúarinnar eru sem hér segir:

  • Miðvikudag til föstudags frá 12 til 18
  • Laugardaga frá 12 til 16

The avengersHver er á bak við frú Laugu?

Frú Lauga á sig sjálf, en það eru Arnar og Rakel sem starfrækja hana — svo vitnað sé í Megas.

Hvaðan kemur nafnið?

Frú Lauga heitir í höfuðið á ömmum okkar stofnendanna, þeim Sigurlaugu, Guðlaugu og Áslaugu. Laugarnesið, Laugardalinn og Laugalæk, götuna þar sem frúin stendur.

Ég er framleiði góðar íslenskar vörur og vil gjarnan að þær fáist hjá frú Laugu. Hvað á ég að gera?

Sendu Arnari póst undir eins. Við viljum endilega heyra í þér! Póstfangið er arnar (hjá) vinogmatur.is

Hvað er Vín og matur?

Það má segja að frú Lauga sé dóttir Víns og matar, sem við stofnuðum árið 2004. Vín og matur flytjur inn mjög mikið af afskaplega góðum vínum (þótt við segjum sjálf frá).

Árið 2008 fékk Vín og matur viðurkenningu Vínþjónasambandsins fyrir að “stuðla markvisst að vínmenningu á Íslandi, með því að leggja áherslu á vandað úrval af víntegundum á aðgengilegu verði.”

Meira um Vín og mat

Hver er Beljan?

Beljan er systir frú Laugu. Hún kemur frá Ítalíu og er mjög dularfull.

HVER ER FRÚ LAUGA?

Frú Lauga heitir í höfuðið á ömmum okkar stofnendanna, þeim Sigurlaugu, Guðlaugu og Áslaugu. (Fjórða amman hét Elín. Við skírum örugglega eitthvað í höfuðið á henni seinna.)

Nafnið hefur líka skírskotun í hverfið okkar, Laugarnesið, Laugardalinn og Laugalæk, götuna þar sem frúin stendur.

Bændamarkaður frú Laugu on Facebook
Fréttabréf Frú Laugu

Frúin sendir einstaklega fróðlegt og fagurt fréttabréf um það bil tvisvar í mánuði.

Áskrifendur fá fréttir af frúnni, sögur úr búðinni, viðtöl við bændurna sem framleiða vörurnar sem við seljum og svo uppskriftir að alls konar gómsætum mat og meðlæti.

Fréttabréfið er ókeypis og það er mjög einfalt að gerast áskrifandi. (Og það er ennþá auðveldara að segja upp áskriftinni ef þú vilt hætta við.)

Hefurðu hitt Beljuna?

Beljan er sérstök vinkona Frú Laugu.

Hún fæst reyndar ekki hjá frúnni, bara í Vínbúðunum, enda inniheldur hún þrjá lítra af spenvolgu rauð- eða hvítvíni beint frá vinum okkar í Toskana.

Athugið: Það er mjög mikilvægt að geyma Beljuna á fallegum stað.

Beljan »

Vínið með matnum

Við stofnuðum Vín og mat veturinn 2003, eftir að við fluttum heim frá Ítalíu.

Við flytjum bara inn vín og mat sem við okkur þykir sjálfum sérstaklega mikið varið í.

Vín og matur »

Vinir og vandamenn