
Laugalæk, 11. ágúst 2011
Komiði sæl,
Frú Lauga opnaði dyrnar 7. ágúst 2009 á Laugalæk 6. Lauga er ekki bara einhver vinaleg frú sem heitir eftir hverfinu þar sem hún býr, Laugalæk í Lauganesi, heldur sameiginlegt gælunafn þriggja amma okkar eigendanna, Arnars og Rakelar. Allar hétur þær “Lauga”. Sigurlaug, Áslaug og Guðlaug, og sú fjórða hét Elín. Lauga Sigurlaug og Lauga Áslaug eru sprelllifandi á tíræðsaldri. Nafnið vísar til matarástarinnar sem ömmur okkar (og örugglega allar) ömmur sýna.
Og góður matur er það sem frúin sýslar með á hverjum degi. Ekki bara íslenskum bændum og búaliði, heldur útlenskum líka. Frú Lauga elskar að taka á móti ferskum mat beint frá bændum, trillukörlum og öðru góðu fólki sem færir henni hollar og góðar afurðir eftir föngum í hverri viku
. Frú Lauga er líka forvitin og vill vita hvaðan maturinn kemur. Finna hið sérstaka og einstaka, efla góðar hefðir og hvetja til nýjunga.
Arnar og Rakel hafa verið að bardúsa hitt og þetta í gegnum tíðina. Við lærðum í Bandaríkjunum og Ítalíu þar sem hægt er að finna afar fallegan og girnilegan mat á mörkuðum og í verslunum (mynd vantar t.d. ítalía). Þegar heim var komið stofnuðum við fyrirtækið Vín og mat ehf og fórum að flytja inn pínuítið af víni og ennþá minna af mat eins og ólífuolíu, aðallega frá Ítalíu sem við togar einkennilega mikið í okkur svo við ráðum ekki við.
Búðarhugmyndin fæddist í öllu þessu vín- og matarstússi. Við fundum strax þörfina fyrir að leggja áherslu á það góða í íslenskum landbúnaði og byggðum á ýmsum góðum hugmyndum sem við upplifðum í námi og ferðalagi og ekki síst eftir reynsluna í vín- og matarinnflutningi.
Okkur fannst líka vanta tilfinnanlega markað af þessu tagi í Reykjavík og bændamarkaðurinn breyttist smám saman úr draumi í veruleika .
Það er skondið að hugsa til þess þegar Arnar tók upp símann og hringdi í fyrsta bóndann og viðraði hugmyndir okkar. Ýmislegt hefur breyst og þróast frá því Arnar tók upp símann og hringdi í fyrsta bóndann. Hugmyndin á bak við frúnna hefur þroskast og hún dafnað.
Vinir okkar sem koma í Frú Laugu og bændurnir sem við eigum svo gott samstarf við hafa líka haft áhrif á það hvernig starfsseminni er háttað. Það verður að segjast okkur og Frú Laugu til mikillar ánægju að bændur og viðskiptavinir hafa tekið okkur vel frá fyrsta degi við eigum ykkur allt að þakka.
Frú Lauga hefur bætt í vöruúrvalið
smám saman Þótt margt af því sem fékkst á fyrsta degi fæst hér enn. Þessar vörur eru orðnar fastur liður í daglegu lífi frúarinnar.
Frú Lauga er líka svolítið veik fyrir nýlenduvörum, sérstaklega frá Ítalíu.
Hún flytur þær inn sjálf og býður til sölu í nýlenduvöruhorninu.
Sama regla gildir hérna, uppruni, gæði og hollusta. S-in þrjú! Rauða hillan er fengin úr eldhúsi Sigurlaugar ömmu. Hún geymir nokkra vel valda íslenska geisladiska en Frú Lauga hefur sérstaklega gaman að tónlist.
Á eins árs afmæli frúarinnar og uppskeruhátðíð var leikin lifandi tónlist á torginu.
Áður en við opnuðum Frú Laugu fórum við hringinn um landið og hittum sem flesta bændur. Það er mjög gefandi og lærdómsríkt og reynum við að gera eins mikið af því eins og tíminn leyfir.
Við söfnum líka hugmyndum á ferðalögum úti í hinum stóra heimi, ekki bara vegna innflutnings heldur líka hvernig megi bæta búðina sjálfa.
Með kærri kveðju,
fyrir hönd frúarinnar,
Arnar og Rakel
P.S. Hafirðu áhuga á að fá fréttir af frúnni, sendir hún annað slagið fréttabréf með helstu tíðindum af sér. Nýjum vörum, tilboðum og fleiru. Þú getur gerst áskrifandi.
